Heildsala og sérmerktar golfvörur

Hægt er að fá vörur í heildsölu til endursölu fyrir Golfklúbba og búðir. Einnig geta hópar fengið vörur með góðum afslætti. Hafðu samband í tölvupósti á panta(hjá)netgolfvorur.is eða í síma 680 0070 fyrir nánari upplýsingar.

Verslum bæði við innlenda og erlenda birgja. Getum reddað nánast hvaða vörum sem er fyrir okkar viðskiptavini.

ATHUGIÐ merkjum ekki lengur vörur, nema í sérstökum tilfellum. Hafðu þá samband með góðum fyrirvara.

Frábærar vörur sem hafa gott auglýsingagildi sérmerktar. Tilvalið í verðlaun fyrir mót eða í teiggjafir. Merking getur tekið um 2-6 vikur hingað komið til lands.

Netgolfvörur er umboðsaðili/dreifingaraðili á Íslandi fyrir eftirtaldar vörur:

Ártöl merkja hvenær Netgolfvörur hófu innflutning á tilteknum vörumerkjum.

PURE Grips. Golfgrip frá 2010. Ein bestu gripin á markaðnum og ein mest seldu grip á Íslandi. Gerð úr 100% gúmmí, frábær gæði og ending. http://www.puregrips.com

ASHER gloves. Hanskar, derhúfur og bolir frá 2013. Hægt að láta sérmerkja. http://ashergloves.com 

Golfdotz. Tattúmerki til að merkja bolta, kylfur, skó og fl. frá 2013. http://golfdotz.com

Egigo Golf. Golfgrip og vetrarhanskar frá 2013. Góð grip á góðu verði. http://www.egigogolf.com

ColdFusion Golf. Golfboltar sérstaklega hannaðir fyrir kalt veðurfar. Frá 2014. http://coldfusion.com 

Iguana Golf. Golfgrip frá 2014. http://www.iguana-golf.com

Garsen Golf. Púttgrip frá 2014. Henrik Stenson einn fremsti atvinnukylfinur púttar með G-Pro MAX gripi, gripið er mjög óvenjulegt, tígullaga að framan og hönnunin háð einkaleyfi. Frábær grip. http://garsengolf.com

Salty Grips. Frá 2014. Púttgrip gerð úr besta fáanlega korki. Hægt að láta sérmerkjahttp://saltygrips.com 

ClubCrown. Filmur á kylfuhausa til að vernda og skreyta frá 2014. Hægt að láta sérhanna. http://clubcrownbyvive.com / http://clubcrownstripe.com

Titleist vatnaboltar frá USA/Íslandi frá 2014.

Divotend Scotand. Smart Mat Torfuhlíf frá 2014 - Til að nota í öll högg með og án tís. Hlífir golfvöllum í viðkvæmu ástandi. Torfuhlífin er aðeins seld til golfklúbba sem selja eða dreifa til sinna félagsmanna. Hægt að láta sérmerkja klúbbum. http://divotend.com 

Teecil. Tíblýantur, tí sem er einnig blýantur. Frá 2015. Hægt að láta sérmerkja í stöku og í pökkum, bæði pakkningu og tíblýanta. http://www.teecil.com 

Retee Golf. Frá 2015. Flatargafflar og boltamerki. Flatargaffall úr sterku plasti eða úr áli sem jafnframt er yddari, notað til að ydda blýanta og brotin tí og endurnýta. Hægt að láta merkja í stöku og koma í flottum gjafaöskjum. Boltamerkin eru merkt sem fylga álgöfflunum. http://reteegolf.com 

Mettle Golf. Frá 2015. Hanskar og derhúfur. Fallegir og litríkir hanskar. http://mettlegolf.com

Lignum Tee. Frá 2015. Tí sem erfitt er að brjóta. Góð fyrir náttúruna og eru með hæðarstillingu. Tí #1 í Evrópu. Hægt að láta merkja tí og pakkningarhttp://www.lignum-golf.com

Tee Claw. Tí kló til að nota með eigin tíum og nota á æfingamottum og í vetrargolfið, einnig fylgja með bönd til að nota sem æfingatæki, fyrir full högg, vipp og á flötum, endalausir möguleikar. Æfðu með eigin tíum og í þinni hæð eins og úti á velli. Líklega ódýrasta fjölnota æfingatækið á markaðnum. Hægt að láta sérmerkja. Frá 2015. http://teeclaw.com 

Birtee. Frá 2016. Birtee tíin koma í 8 stærðum og eru frábær fyrir golfherma, til að slá í net og í vetrargolfið. Hentar vel eldri kylfingum og krakkar hafa gaman að þeim. Þægileg í notkun og hægt að nota alls staðar. Golfhermar í USA og Kanada gefa Birtee sín bestu meðmæli. Vinsælustu hermatíin á Íslandi. http://birtee.com 

Rosemark Grips. Púttgrip frá 2016. Rosemark er á hraðri uppleið í vinsældum og ein vinsælustu púttgripin á markaðnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Lydia Ko, Cheyenne Woods, Brooke Henderson og fl. hafa eða nota Rosemark www.rosemarkgrips.com 

Sunfish. Kylfuhlífar, skorkortahulstur og seðlaveski frá 2016. Eitt flottasta merkið í þessum flokki. Allt í leðri og handheklaðar kylfuhlífar. Frábært til gjafa og hægt að láta sérmerkja. http://sunfishsales.com 

Maxx Sunglasses. Frá 2016. Fyrsta flokks HD sólgleraugu á frábæru verði. Hægt að láta sérmerkjahttp://maxxsunglasses.com/collections/golf 

Volvik. Frá 2016. Boltar, hanskar og der. Loksins á Íslandi. Golfboltar í mörgum flottum og björtum litum í möttu og glans. Vinsælustu lituðu boltarnir á atvinnumótaröðunum. Tveggja, þriggja og fjögurra laga gæðaboltar sem henta öllum kylfingum. Eru á Hot lista Golf Digest. Hægt að láta sérmerkja. http://www.volvik.com 

Max Golf Protein. Frá 2017. Fyrsti próteindrykkurinn sérhannaður fyrir golf. - Hár í próteini, fitulaus, glúten frír og gefur langvarandi orku, allt í ljúffengum vanillu mjólkursheik. Þrjár tegundir af próteinstykkjum með lífrænum innihaldsefnum og eru vegan. Þriðja varan er rúllubrúsi sem er brúsi fyrir þinn uppáhalds vökva og er jafnframt æfinga og nuddtæki. https://www.maxgolfprotein.com/

P2 Grips. Frá 2018. Írskt gæðamerki í púttgripum. Við hönnun og eiginleika er stuðst við vísindalegar rannsóknir. Grip notað m.a. af Michelle Wie, Kristina Kim og Jodi Ewart Shadoff á LPGA mótaröðinni og Simon Dyson á Evrópumótaröðinni. Grip á hraðri uppleið í vinsældum. http://p2grips.com

Snell Golf. Frá 2018. Boltar og derhúfur. Snell boltarnir eru í hæsta gæðaflokki og eru á Hot Lista Golf Digest, hafa fengið frábærar viðtökur og jákvæðar umfjallanir. Ódýrari keppnisboltar. http://snellgolf.com 

Daiya Golf. Frá 2018. Smáhlutir eins og tí, tíhaldarar, teljarar, reykboltar og fl. Eitt flottasta merkið í þessum flokki, japanskt gæðamerki. http://aerosparktee.com